Skipið Madleen er komið til hafnar Ashdod í Ísrael eftir að ísraelskir hermenn stöðvuðu för þess í egypskri lögsögu í nótt. Tólf aðgerðasinnar voru um borð í skipinu sem var á leið til Gaza með hjálpargögn. Talið er að aðgerðasinnarnir verði hnepptir í varðhald og svo vísað úr landi.Samkvæmt fréttastofu Al-Jazeera verða aðgerðasinnarnir ákærðir fyrir að hafa ætlað sér að koma til Ísraels með ólöglegum hætti. Palestínsku mannréttindasamtökin Adalah segja sakarefnið ekki standast skoðun enda hafi skipið verið á leið til Gaza, sem tilheyri Palestínu, með hjálpargögn og aldrei hafi staðið til að skipið legðist ólöglega að bryggju í Ísrael.Þá hefur Francesca Albanese, sérstakur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu, fordæmt aðgerðir Ísraelshers gagnvart skipverjum Madleen og sag