Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump segist hafa bjargað Los Angeles frá óeirðarseggjum

Lögregla beitti táragasi og gúmmíkúlum á mótmælendur í Los Angeles í gærkvöldi. Þar komu þúsundir saman, þriðja kvöldið í röð, til að mótmæla hertri innflytjendastefnu Trumps Bandaríkjaforseta. Nokkuð var um skemmdarverk og gripdeildir í gærkvöld og lögregla ákvað því að beita aukinni hörku gegn mótmælendum.Nokkur hundruð þjóðvarðliðar aðstoðuðu lögreglu í gær en Trump Bandaríkjaforseti sendi þá á vettvang, þrátt fyrir að hvorki ríkisstjórinn né lögreglustjórinn í Los Angeles segi að það sé þörf á því. Trump segist hafa sent þjóðvarðliðið til aðstoðar og þar með bjargað borginni frá uppreisnarseggjum.Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, segir það gert til að ögra mótmælendum. Hann hefur hótað að stefna ríkisstjórninni vegna valdbeitingarinnar.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera