Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lyfjastofnun Evrópu rannsakar bóluefni gegn hlaupabólu eftir að barn lést úr heilabólgu

Lyfjaöryggisnefnd Lyfjastofnunar Evrópu hefur hafið rannsókn á tveimur bóluefnum gegn hlaupabólu eftir að pólskt barn lést úr heilabólgu nokkrum dögum eftir að hafa fengið bólusetningu.Bæði bóluefnin eru í notkun á Íslandi og hafa verið í hátt í 30 ár, að því er fram kemur í tilkynningu Landlæknis, en almenn bólusetning fyrir hlaupabólu hófst þó ekki hér á landi fyrr en árið 2020. EKKERT ORSAKASAMHENGI LIGGI FYRIR Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir ekki ástæðu til að breyta ráðleggingum á þessu stigi máls.„Þetta er eitt atvik en alveg óljóst að það sé eitthvert orsakasamhengi þarna á milli. Það getur alveg eins verið að það sé ekki, að þetta séu tveir aðskildir atburðir. Við vitum ekkert um einstaklinginn,“ segir Guðrún.„Jafnvel þótt það væri orsakasamhengi þá gæti það líka tengst vi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera