Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stjórnarformaður Kviku fagnar áhuga á bankanum

Sigurður Hannesson stjórnarformaður Kviku banka segist fagna áhuga Íslandsbanka og Arion banka á að kaupa eða sameinast Kviku banka en ekkert liggi fyrir um framhaldið.Eins og kunnugt er hafa bankarnir tveir lýst yfir áhuga á sameiningu og báðir óskað eftir viðræðum við Kviku banka.Íslandsbanki segist reiðubúinn til að bjóða 10% ofan á markaðsvirði Kviku við útreikning á skiptihlutföllum. Bankinn er líka tilbúinn að greiða hluthöfum Kviku fyrir hlut sinn með hlutabréfum og reiðufé og óskar eftir svari í síðasta lagi í næstu viku, en sé tilbúinn að framlengja frestinn.Arion banki segir að sameining við Kviku myndi skila verulegum verðmætum til hluthafa beggja félaga.Stjórnarformaður Kviku sagði í samtali við fréttastofuna að þar á bæ væru menn að ráða ráðum sínum og meta stöðuna. Lítið væri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta