Fjármálaráðuneytið hefur birt list yfir alla kaupendur í útboði á eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka fyrr í mánuðinum. Sjóðurinn Alpha hlutabréf var meðal þeirra sem mest keyptu í útboðinu, eða fyrir 192 milljónir króna. Alpha hlutabréf ef sérhæfður sjóður í stýringu Íslandssjóða, sem eru í eigu Íslandsbanka sjálfs. Mest keypti Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, fyrir milljarð króna.