Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Go trans ehf. til að endurgreiða manni kaupverð Toyota Land Cruisers í kjölfar riftunar kaupsamnings milli fyrirtækisins og kaupandans. Auk þess var fyrirtækinu gert að greiða manninum rúma eina milljón króna í málskostnað.