Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Langt sumarfrí Seðlabankans sérstakur áhrifaþáttur

Ekki er hægt að gera ráð fyrir frekari lækkun stýrivaxta gangi spá peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands eftir, að mati Jóns Bjarka Bentssonar, aðalhagfræðings Íslandsbanka. Við tilkynningu síðustu vaxtaákvörðunar hafi verið skýrt að vextir yrðu ekki lækkaðir frekar nema verðbólga hjaðni en nefndin spái því að hún verði svipuð í árslok og nú.Seðlabankinn lækkaði stýrivexti niður í 7,5 prósent síðasta miðvikudag.Jón Bjarki sagði skrítið að svo harður tónn væri sleginn samhliða vaxtalækkunartilkynningu.„Það sem mér fannst svolítið skrítið var að þessi skilaboð, sem má kalla býsna harðan tón, eru sett fram samhliða vaxtalækkun. Þeir sem gerðu ráð fyrir vaxtalækkun furðuðu sig á þessum harða tóni. Við sem áttum von á að ekki yrðu lækkaðir vextir skildum tóninn en okkur fannst þetta skrítin b

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera