Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Áframhaldandi norðanátt

Skammt norðaustur af Færeyjum er hægfara lægð sem viðheldur norðanáttinni í dag. Á sumum stöðum má búast við strekkingsvindi, hvassast á Vestfjörðum, en hægari vindi suðvestanvert á landinu. Dregur úr vætu, smáskúrir eftir hádegi en styttir upp vestanlands. Hiti yfirleitt ábilinu 7 til 13 stig.Á morgun er búist við svipuðu veðri, dálítilli vætu og hita frá 5 til 13 stigum.Lægðin tekur svo að fjarlægjast. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að við taki hálfgerð áttleysa næstu daga. Hiti breytist lítið en búast má við hærri hita um næstu helgi.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera