Handmótuð brjóstmynd, steypt í brons í Elchingen í Þýskalandi, verður fest á steinstöpul og henni fundinn staður undir berum himni í Kópavogi til frambúðar. Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggvari gerði styttuna en hún prýðir plötuumslagið á næstu plötu Birnis. Þórsteinn Sigurlaugsson, sem gengur undir listamannsnafninu Doddi digital, sá um hönnun og sjónræna útfærslu plötunnar.