Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þjóðverjar segja herskyldu koma til greina

Boris Pistorius varnarmálaráðherra Þýskalands segir koma til greina að innleiða herskyldu í landinu að nýju ef ekki tekst að manna her landsins með sjálfboðaliðum.„Ef sú stund rennur upp að við verðum með meira pláss en sem nemur sjálfviljugum skráningum, þá kann að vera tekin ákvörðun um að gera herþjónustu skyldubundna,“ sagði Pistorius í viðtali við fréttablaðið Frankfurter Allgemeine Sonntagszeitung. „Það er áætlunin.“Pistorius tók fram að hin nýja ríkisstjórn Friedrichs Merz væri að vinna að nýjum lögum um herþjónustu og sagðist vona að hún verði komin í gildi í janúar 2026.Herskylda var lögð niður í Þýskalandi árið 2011. Um þessar mundir telur þýski herinn til sín um 182.000 hermenn í virkri þjónustu. Til þess að fullnægja kröfum Atlantshafsbandalagsins yrðu hermennirnir að vera um 4

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera