Kærunefnd útlendingamála hefur hafnað því að taka umsókn hins sautján ára Oscars Anders Florez Bocanegra um landvistarleyfi til efnislegrar meðferðar. Honum verður því að óbreyttu vísað einum úr landi og til Kólumbíu í upphafi júní. Farið verður með málið fyrir dómstóla.