Fiskroð frá Kerecis bjargaði bandarískum skallaerni
Íslenska fyrirtækið Kerecis átti þátt í að bjarga lífi bandarísks skallaarnar sem fannst í almenningsgarði í Hayward í Wisconsin í september. Örninn, sem hlaut nafnið Kere, fannst með illa sýkt svöðusár frá hnéi til ökkla, allan hringinn um fótlegginn.Dr. Kim Ammann, sem stofnaði og rekur dýraskýlið Winged Freedom Raptor Hospital, tók Kere í vörslu sína eftir að hún fannst. Ammann hefur sérhæft sig í að hlúa að meiðslum fugla en í þessu tilviki sagðist hún lítið geta gert því allt hörundið var farið af fótleggnum.„Það var ekkert skinn á honum,“ sagði Ammann við fréttamiðilinn Northern News Now, „Svo þetta voru opnir vefir, opnir vöðvar, berskjaldaðir fyrir loftinu, fullir af sýkingum og möðkum og þornaðir upp.“Eftir eftirgrennslan á netinu uppgötvaði Ammann Kerecis, sem fæst við að græða s