Harvard-háskóli í Bandaríkjunum hefur höfðað mál gegn ríkisstjórn Donalds Trump eftir að skólanum var bannað að taka við erlendum nemendum. Bráðabirgðalögbann var sett á ákvörðunina í dag.Um 6.800 nemar við Harvard eru erlendir, eða rúmlega 27 prósent skráðra nemenda skólans.Kristi Noem, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna sakaði Harvard meðal annars um að hvetja til ofbeldis og gyðingaandúðar.Rektor Harvard fordæmdi ákvörðunina og háskólinn hefur höfðað mál gegn stjórnvöldum. Bandarískur dómari lagði í dag bráðabirgðalögbann á ákvörðunina.Harvard sakaði stjórnvöld um blygðunarlaust brot gegn lögum og stjórnarskrárvörðum rétti til tjáningarfrelsis. Í málsgögnum sagði Harvard stjórnvöld reyna að afmá fjórðung nemenda skólans með einu pennastriki.