Íslendingar leiða jarðhitaframkvæmdir á spænsku eyjunni Tenerife þar sem borað verður eftir jarðhita í fyrsta sinn. Fyrirtækið Reykjavík Geothermal á og leiðir verkefnið í samstarfi við þarlend stjórnvöld og orkufyrirtæki.Félagið byrjar að bora í haust og verða borholurnar á bilinu 2.500 til 3.000 metra djúpar. Rannsóknarsvæðin eru á vestur- og suðurhluta eyjunnar. Verkefnið miðar að því að staðfesta að aðstæður séu til orkuframleiðslu, það er að orkan sé hrein, stöðug og staðbundin og geti nýst allt árið um kring.Magnús Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavík Geothermal, segir að þarna sé stórt tækifæri á ferð. Yfir 80% af rafmagni á Tenerife er framleitt með innfluttri olíu, sem er brennd í ljósavélum og er fyrirkomulagið bæði óumhverfisvænt og dýrt.Hvorki er hægt að virkja vatnsafl á eyjunni n