Utanríkisráðherra segir að Ísland ætli að taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael með fleiri ríkjum - verði ákveðið að beita þeim. Hún segir mjög skiljanlegt að fólk mótmæli fyrir utan ríkisstjórnarfundi. VERÐUR AÐ GERA ALLT TIL AÐ KOMA AÐSTOÐ TIL FÓLKS Þrýstingur á Ísrael að hleypa neyðaraðstoð til Gaza eykst sífellt og segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra að sá þrýstingur komi nú einnig frá ríkjum sem ekki hafi tamið sér að gagnrýna Ísrael. Það sé stríðsglæpur að beita hungri sem vopni og því muni þessi þrýstingur vonandi leiða til þess að mannúðaraðstoð berist, þúsundir vöruflutningabíla bíði skammt undan eftir að fá að flytja aðstoð inn á svæðið.„Það verður að gera allt til þess að koma þessari aðstoð inn á svæðið, við erum að horfa á það miklar hörmungar.“ SKI