Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hjalti Snær fannst látinn

Hjalti Snær Árnason fannst látinn í sjónum á milli Engeyjar og Viðeyjar að kvöldi 13. maí. Þetta staðfestir móðir Hjalta í samtali við mbl.is. Hjalta hafði verið saknað síðan í mars. Hann var 22 ára.Gerður Ósk Hjaltadóttir, móðir hans, sagði í viðtali við fréttastofu fyrr í mánuðinum að það væri áríðandi að bæta þjónustu við fólk í sporum sonar síns. Hann var greindur með einhverfu og geðklofa.Hann átti erfitt með að fóta sig félagslega og í tvö ár áður en hann hvarf glímdi hann við erfið geðræn veikindi. Fjölskyldan hans býr á Akureyri en hann flutti sjálfur til Akureyrar.Veikindi Hjalta Snæs versnuðu í Reykjavík og hann var nauðungarvistaður á Landspítala. Þaðan var hann fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri, þar sem móðir hans segir hann hafa byrjað aftur á byrjunarreit.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera