Stýrivextirnir niður í 7,5%
Meginvextir Seðlabanka Íslands, sem í daglegu tali eru kallaðir stýrivextir bankans, voru lækkaðir um 0,25 prósentustig í morgun. Eftir lækkunina standa vextirnir í 7,50%. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar bankans segir að allir nefndarmenn hafi stutt þessa ákvörðun.Þar segir að óvissa um verðbólguhorfur sé enn mikil, ekki síst vegna vendinga í alþjóðlegum efnahagsmálum. Í nýbirtri spá Seðlabankans er gert ráð fyrir að verðbólga haldist nálægt 4% út árið en taki síðan að hjaðna.Verðbólga var 4,2% í apríl og hún hefur minnkað talsvert á síðustu tveimur árum. Ársverðbólga mældist 10,2% í febrúar fyrir rúmum tveimur árum.Einn helsti tilgangur stýrivaxta getur verið að hægja á efnahagslífinu til þess að berjast gegn verðbólgu. Verðbólga jókst hratt frá lokum 2021 og til 2023. Seðlabankinn brá