Árni Gunnólfsson, skipstjóri á Þerney, segir veturinn hafa skilað góðri veiði þótt í augnablikinu sé enginn mokafli. Meira sé af djúpkarfa en áður. Hann skilji ekki hví hann sé ekki veiddur. Þorskkvótinn sé að klárast og þorskurinn á leið til Grænlands.