Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þingmaður Samfylkingar segir óheppilegt að samið hafi verið við Rapyd

Þingmaður Samfylkingarinnar segir það óheppilegt að íslensk stjórnvöld hafi ákveðið að semja aftur við ísraelska greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd. Ríkisstjórnin hafi þegar hafið samtal um hvort bregðast eigi við. Greiðslumiðlunin Rapyd hefur reynst umdeild víða um heim, og ekki síst hér á landi þar sem fjöldi fyrirtækja hefur sniðgengið hana, eftir að forstjórinn lýsti opinberlega yfir stuðningi við Ísraelsher fyrir hönd fyrirtækisins. Samningur íslenska ríkisins við Rapyd rann út í fyrra og hefur verið til endurskoðunar síðan þá. Fjársýsla ríkisins samdi síðan á nýjan leik við fyrirtækið um miðjan síðasta mánuð til tveggja ára. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í gær að það varði þjóðaröryggi landsins að skipta við erlend greiðslumiðlunarfyrirtæki. Dagbjört Hák

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera