Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Skora á Storytel og hvetja höfunda til sniðgöngu

Rithöfundasamband Íslands skorar á Storytel á Íslandi að ganga til samninga um rammasamning sem feli í sér sanngjarnt og gagnsætt endurgjald til höfunda af útgáfu hljóðbóka.Þetta kemur fram í ályktun sambandsins sem var samþykkt á aðalfundi 28. apríl.Sambandið hvetur félaga til að beita sér fyrir því að ný verk þeirra verði ekki sett á streymisveituna fyrr en samið hefur verið.Umræður urðu um kjör rithöfunda fyrir hljóðbækur í fyrrasumar þegar könnun Rithöfundasambandsins leiddi í ljós að 74% höfunda sögðust fá 0-5% af tekjum sínum fyrir ritstörf frá Storytel. Aðeins 3% höfunda fengu 20% eða meira af heildartekjum sínum frá Storytel. Flestir, eða 88%, voru ósáttir við sinn hlut.„Án sanngjarnra höfundarréttargreiðslna fær bókmenntalíf ekki þrifist hjá þjóð sem kennir sig á tyllidögum við bó

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta