Í síðustu viku birti Brynjar eða Lil Binni, eins og hann kallar sig, hugleiðingar sínar um innflytjendamál á samfélagsmiðlum. Brynjar er annar tveggja meðlima í Club Dub sem er ein vinsælasta hljómsveit landsins. Hann er líka streymari með marga fylgjendur á youtube og Twitch.Í textanum sem hann birti í story á Instagram sagðist hann vilja tjá sig um mál sem öllum með vit og hugrekki þættu frískandi að lesa.Hann sagði að hér og alls staðar í Evrópu væri innflytjendavandamál. Vandamálið væri fólk úr þriðja heiminum og það aðhylltist íslam. „Þetta eru blóðsogur sem bera enga virðingu fyrir okkur, okkar siðum og menningu. Komin til að sjuga kerfið þurrt, nauðga og rífa kjaft.“Svo hvatti Brynjar fylgjendur sína til að gera allt sem þeir gætu til að losna við þetta lið með #FYRSTUVELHEIM. Hann