Myndir af frönsku nunnunni systir Genevieve standa við bæn yfir líki Frans páfa hafa farið sem eldur um sinu um veraldravefinn. Hin 82 ára nunna braut siðareglur með athæfi sínu, en kardínálar stóðu í biðröð til að votta páfanum virðingu sína og almenningur hafði enn ekki fengið inngöngu í Pétursbasilíkuna.