Hótelið lokað í daga eða vikur eftir brunann

Ferðamenn sem lögðust til svefns á Hótel Skjaldbreiði við Laugarveg í Reykjavík í gærkvöld vakna í dag á öðrum hótelum í eigu sömu hótelkeðju. Starfsmenn fóru strax í það að koma fólkinu út og finna því gistingu annars staðar þegar eldur kviknaði í kjallara hússins. Tveir voru fluttir á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun og einn var handtekinn vegna eldsvoðans. Auk Hótels Skjaldbreiðar er fatabúðin Andrá í húsinu. Kristófer Oliversson er forstjóri Center hotels sem eiga og reka Hótel Skjaldbreið.„Það var næturvörður á hótelinu og komu strax þrír aðrir starfsmenn af nærliggjandi hótelum. Það var mjög hratt brugðist við, bankað á öll herbergi og fólki komið.“„Við gátum komið þeim á önnur hótel hjá okkur en þau fara og sækja farangur sinn með morgninum.“Hótelgestir sem gistu á Hótel Skjaldbr
Hótelið lokað í daga eða vikur eftir brunann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd