Nýjar kartöflur í næstu viku

Vænta má að fyrstu nýju íslensku kartöflurnar komi í verslanir strax eftir helgina. Hjalti Egilsson, bóndi á Seljavöllum við Hornafjörð, var í gær að undirbúa uppskerustörf og gera vélar klárar. Hann reiknar með að geta byrjað að taka upp nú í vikulokin. Hann stefnir á að ná 2-3 tonnum af kartöflum, sem verða komnar í verslanir Nettó á höfuðborgarsvæðinu í síðasta lagi á þriðjudag.
Nýjar kartöflur í næstu viku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd