Ný Ölfusárbrú svalar vatnsþörf stækkandi byggðar og fangelsis

Ný Ölfusárbrú getur flutt allt að fjórum sinnum meira vatn yfir Ölfusá en núverandi brú. Vatnsþörfin í Árborg eykst með stækkandi byggð og nýju fangelsi sem rís í stað Litla-Hrauns.„Nú er komið á staðinn um helmingurinn af því stáli sem fer í brúargrindina og seinni hlutinn er nú þegar kominn til Þorlákshafnar þannig að það verður farið í að flytja hann hingað næstu kvöld,“ segir Höskuldur Tryggvason verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.Áætlað er að stálgrindin verði tilbúin samansett síðsumars eða í haust og þá verður henni einfaldlega ýtt yfir ánna. Hún vegur ein og sér um 1.600 tonn.„Hún er byggð þannig að það er hægt að hafa á henni fjórar akreinar en nú í byrjun þá verða tvær akreinar sem munu liggja til vesturs og ein akrein til austurs. Syðsta akreinin verður tekin undir göng og hjólastí
Ný Ölfusárbrú svalar vatnsþörf stækkandi byggðar og fangelsis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd