Samtökin No Borders Iceland fordæma frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð sem samþykkt var á Alþingi í dag „með djúpri fyrirlitningu“. Þetta segir í Facebook-færslu sem samtökin birtu fyrir skömmu.Í færslunni hvetja samtökin almenning til að „hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd.“Þá segja samtökin brottfararstöðina vera birtingarmynd siðferðislegs gjaldþrots stjórnvalda sem hafi innleitt lög sem stuðli að „frelsissviptingu saklausra einstaklinga, þar á meðal ósakhæfra barna.“No Borders eru alþjóðleg samtök sem berjast gegn brottvísunum flóttamanna.