Besta gusan og besta gusuljósmyndin valin

Finnska sendiráðið í samvinnu við gusumeistarafélags Íslands stóðu í kvöld fyrir viðburði á Ægissíðunni þar sem besta gusan og besta gusuljósmyndin voru útnefnd. Ragnar Jón Hrólfsson fréttamaður fór í gusu og ræddi við Völu Baldursdóttur, eiganda Sækots við Ægissíðuna.Finnska sendiráðið átti hugmyndina að ljósmyndakeppninni og sá um að útnefna sigurvegara. Valið á sigurmyndinni var erfitt, að sögn Völu.Spurð að því hvað geri gusuna svona æðislega stendur ekki á svörum: „Ég myndi nú segja fyrst og fremst samveran og náttúran,“ segir Vala.
Besta gusan og besta gusuljósmyndin valin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd