Þrátt fyrir fjölgun í hjúkrunarfræðinámi er skortur á hjúkrunarfræðingum

Töluverð aukning hefur orðið á þeim sem sækja um að fara í hjúkrunarfræðinám, sérstaklega á Akureyri. Illa gengur þó að bregðast við skorti á hjúkrunarfræðingum á landsvísu og spila þar samkeppnispróf hjúkrunarfræðinámsins stóran þátt.Það eru 329 einstaklingar sem vilja hefja nám við hjúkrunarfræði á Akureyri í haust. Þá eru rúmlega 200 sem vilja fara sömu leið í Háskóla Íslands. Mikil ásókn er í námið sem er gleðilegt að mati Helgu Bragadóttur, deildarforseta hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands.„Það virðist vera eitthvert ris núna, kannski hefur bara umfjöllun og heimsástandið áhrif. Það er kannski bara þannig,“ segir Helga.Áslaug Ásgeirsdóttir rektor HA tekur í sama streng og gleðst yfir fjölgun umsókna þó að aðeins fjórðungur af þeim komist í gegnum samkeppnispróf: „Hjúk
Þrátt fyrir fjölgun í hjúkrunarfræðinámi er skortur á hjúkrunarfræðingum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd