Skortur á fyrirsjáanleika um fyrirhugaðar skattahækkanir og ný gjöld er þegar farinn að hafa áhrif á ferðaþjónustu hér á landi fyrir næsta ár. Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir óásættanlegt að ferðaþjónustufyrirtæki þurfi alltaf að glíma við óvissu.