Ásdís Kristjánsdóttir var endurráðin bæjarstjóri Kópavogs á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar í dag. Ásdís er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og tók fyrst við starfi bæjarstjóra árið 2022.Víðir HólmSjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynda meirihluta í Kópavogi með sjö bæjarfulltrúa.„Ég heyri í samtölum mínum að Kópavogsbúar eru stoltir og ánægðir með sitt bæjarfélag og undir okkar forystu ætlum við að tryggja að svo verði áfram,“ er haft eftir Ásdísi í tilkynningu.