Náttúruverndarstofnun hefur ákveðið að hafna öllum leyfisbeiðnum um drónaflug í afþreyingar- og fræðsluskyni á 26 friðlýstum svæðum víðs vegar um landið. Áður fyrr gátu ljósmyndarar sótt um leyfi og fengið það hjá Náttúruverndarstofnun Íslands.Að sögn Jeroen Van Nieuwnhove ljósmyndara hefur það gengið snuðrulaust fyrir sig undanfarin ár, allt þar til nú. Þann 17. maí tók gildi ný stjórnsýsluframkvæmd Náttúruverndarstofnunar vegna truflunar og óhappa, sem gerir það að verkum að leyfum fyrir drónaflugi í afþreyingar- eða fræðsluskyni er hafnað. Hins vegar eru leyfi veitt fyrir drónaflugi í atvinnuskyni eins og kvikmynda- eða auglýsingagerð. MARGT SKAÐLEGRA NÁTTÚRU EN DRÓNAR Ljósmyndarafélag Íslands hefur lýst yfir þungum áhyggjum af stöðunni sem upp er komin og segir hana skerða atvinnufr