Trump sakar Írana um að skjóta niður þyrlu — ætlar að bregðast við

Bandaríkjaforseti segir Írana hafa skotið niður bandaríska þyrlu við Hormússund og ætlar að grípa til aðgerða. Fyrir hálfum sólarhring sagði hann líkur á að friðarsamkomulag kláraðist á næstu dögum.Í morgun sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, samkomulag við Íran í augsýn en nú rétt fyrir fréttir sakaði hann Írani um að skjóta niður bandaríska þyrlu. Við því segist hann verða að bregðast. Nú eru því auknar líkur á að átök Bandaríkjanna og Írans hefjist að nýju.Bandaríkin og Ísrael sem hófu árásir á Íran 28. febrúar. Aðeins tveimur dögum síðar hafði Líbanon dregist inn í stríðið vegna átaka Hezbollah og Ísraels. Ísraelsher hélt í dag áfram þungum árásum á Líbanon.Skelfingarástand skapaðist í Týros þegar þúsundir lögðu á flótta eftir fyrirskipun Ísraelshers og minnst níu voru drepin á
Trump sakar Írana um að skjóta niður þyrlu — ætlar að bregðast við

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd