Við erum mörg háð símanum okkar og grípum í hann tugum eða jafnvel hundrað sinnum á dag. Nú truflar tæknin okkur á mikilvægustu stundum lífsins, meðal annars í fæðingum.Oddný Silja er ljósmóðir á Björkinni og heldur auk þess fæðingarnámskeið. Hluti af námskeiðinu í dag fer í að biðja foreldra að leggja frá sér símann.„Við getum ekki verið algjörlega viðstödd og með þessa nærveru ef við erum að svara einhverjum í símanum og skoða eitthvað á Facebook. Þetta er truflandi. Makar og stuðningsaðilar í fæðingu eru að taka upp tækin til að gera eitthvað sem viðkemur ekkert stundinni,“ sagði Oddný í Kastljósi.Hún segir að þetta komi ekki frá slæmum stað.„Við erum bara svo háð símanum að við erum búin að sækja símann okkar áður en við hugsum: „Já, ég á von á fyrsta barninu mínu.““