Ástand Mette-Marit krónprinsessu í Noregi er alvarlegt að sögn norsku konungshjónanna, Haraldar og Sonju. Þau tjáðu sig í dag þegar þau heimsóttu bæinn Beiarn í Norður-Noregi.Mette-Marit er með ólæknandi lungnasjúkdóm og þarf á lungnaígræðslu að halda. Hún er nú á biðlista eftir nýju lunga.Konungshjónin byrjuðu á að þakka fyrir mikinn stuðning frá almenningi vegna heilsu Mette-Marit. Hann sást meðal annars í því að skráðum líffæragjöfum fjölgaði til muna í síðustu viku. Þá fengu þau líka góðar kveðjur frá íbúum Beiarn.Ástand Mette-Marit krónprinsessu Noregs er alvarlegt, segja norsku konungshjónin. Ingrid dóttir krónprinsessunnar er komin heim frá Ástralíu vegna veikinda móður sinnar.Þegar konungshjónin voru spurð hvernig þeim liði eftir allt sem á undan er gengið sögðust þau hafa það fínt