Rússneskir „varðliðar“ gæta skuggaflotaskipa

Skuggaflotinn eru skip, ýmist fraktskip eða olíuflutningskip, sem Rússar nota til að koma sér fram hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum vegna stríðsins í Úkraínu. Þorrinn eru ótryggðir ryðdallar sem sigla undir hentifána eða jafnvel án lögbundinnar skráningar.Þessi skip flytja einkum olíu frá Rússlandi til Indlands og Kína. Þetta skilar rússneska ríkinu milljörðum dollara í ríkiskassann í hverjum mánuði. ALLT REYNT TIL AÐ HALDA SKIPUNUM GANGANDI Um skeið hefur Evrópusambandið aukið þrýstinginn á skuggaflotann, Rússum til armæðu. Hópur evrópskra fjölmiðla komst yfir áhafnaskrár skuggaflotaskipa og gat með frekari rannsóknum sýnt fram á að Rússar hefðu tekið upp á því að setja hermenn eða málaliða, suma hverja fyrrverandi Wagner-málaliða, um borð í skipin. Tvö atvik eru nefnd sem dæmi
Rússneskir „varðliðar“ gæta skuggaflotaskipa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd