Brottvísunarstöð tekur til starfa 1. desember eftir að Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis í dag. Breytingatillögur um vistarverur barnafjölskyldna voru samþykktar. Frumvarpið var umdeilt og var aðallega gagnrýnt fyrir að börn skyldu vistuð í lokuðu úrræði. Brottvísunarstöðinni er ætlað að hýsa útlendinga sem vísa á úr landi. Henni verður fundið húsnæði á Suðurnesjum. Þær breytingar voru gerðar á frumvarpinu milli fyrstu og annarrar umræðu að barnafjölskyldur skyldu vistaðar fjarri einstaklingum og þeim yrði tryggð afmörkuð svefnaðstaða þótt önnur aðstaða, svo sem eldunar- og salernisaðstaða, yrði sameiginleg. Gengið var lengra milli annarrar og þriðju umræðu og kveður frumvarpið á um að barnafjölskyldur fái afmarkað rými með að lágmarki svefnaðstöðu, tómstundasvæði innan- og utandyra, a