Þrettán hlutu nýlega dóm fyrir að hafa framvísað fölskum skilríkjum á Keflavíkurflugvelli í fyrra. Flestir þeirra sóttu um alþjóðlega vernd eftir handtöku.Í fyrra var greint frá því að fjórtán hefðu verið handtekin á Keflavíkurflugvelli í lok sumars með fölsuð skilríki. Öll voru þau á leiðinni til Kanada frá Íslandi eftir að hafa komið inn á Schengen-svæðið í gegnum önnur ríki.„Ég get staðfest að það var sakfellt í þrettán tilvikum,“ segir Ómar Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli.Dómarnir voru birtir hluta fólksins í Lögbirtingablaðinu, það sem ekki náðist í fólkið til að birta þeim dómana. Þeir hljóða upp á 30 eða 45 daga fangelsisvist. Samkvæmt heimildum fréttastofu er fólkið kínverskir ríkisborgarar. Skilríkin voru þó frá ýmsum löndum, til dæmis Suður-Kóreu og Japa