Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður.