Áframhaldandi gæsluvarðhald vegna smygls á kókaíni og amfetamíni

Fimm karlar voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við innflutning á talsverðu magni sterkra fíkniefna. Mennirnir voru handteknir í Reykjavík og Hveragerði. Þeir eru tveir Íslendingar og þrír erlendir ríkisborgarar.Fíkniefnin voru kókaín og amfetamín sem var flutt til Íslands með Norrænu, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í dag að mennirnir skyldu sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 19. júní.Rannsókn málsins miðar vel, en hún hefur verið unnin í samstarfi nokkurra lögregluembætta, auk Tollgæslunnar.
Áframhaldandi gæsluvarðhald vegna smygls á kókaíni og amfetamíni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd