Tvær stunguárásir með stuttu millibili hafa vakið óhug í Bretlandi. Árásirnar tvær eru þó af afar ólíkum toga.Maður var stunginn margsinnis í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöld. Myndskeiði af árásinni var dreift á samfélagsmiðlum sem sýndi árásarmanninn skera þolandann ítrekað í höfuð og háls með hnífnum og virtist vera að reyna að hálshöggva hann. Vegfarendur náðu að yfirbuga manninn og lögreglan handtók hann.Þolandinn var fluttur á sjúkrahús alvarlega særður. Sá handtekni er frá Sómalíu og á fertugsaldri. Það varð til þess að hvatt var til mótmæla gegn straumi innflytjenda á fjölmörgum samfélagsmiðlareikningum. Einn þingmaður segir manninn vera með dvalarleyfi í Bretlandi til fimm ára.Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands sagði árásina hörmulega og hann liði ekki svona ofbeldisverk á