Rannsókn á málum þriggja barna, vegna meintra brota á leikskólanum Múlaborg, hefur aftur verið felld niður. Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Hannes Valle, fyrrverandi starfsmaður leikskólans, var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar undir lok síðasta mánaðar fyrir kynferðisbrot gegn stúlku á leikskólanum. Lögregla hafði minnst tíu mál til rannsóknar en einungis eitt leiddi til ákæru. Foreldrar fjögurra barna kærðu niðurfellingu mála til ríkissaksóknara.Ríkissaksóknari krafðist þess í mars að mál þriggja barna yrðu rannsökuð betur. Hildur Sunna segir ríkissaksóknara hafa talið að tilteknir þættir væru órannsakaðir, en það hafi byggt á misskilningi.Þættirnir hefðu þegar verið rannsakaðir af lögreglu og ríkissaksóknari ha