Nei-sinnar eru æfir vegna Silfurs Ríkisútvarpsins en það var helgað spurningunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Heimsýn, sem berst gegn aðildarviðræðum, hefur sent bréf sem stílað er á Stefán Eiríksson útvarpsstjóra og Stefán Jón Hafstein formann stjórnar RÚV þar sem viðraðar eru þungar áhyggjur af efnistökum RÚV.