Loka á hjúkrunardeildinni Ljósheimum á Selfossi á næsta ári en ekki Ljósheimum og Fossheimum eins og sagt var á vef RÚV á sunnudag. Þetta áréttar heilbrigðisráðuneytið í fréttatilkynningu í dag. Í Ljósheimum eru 20 hjúkrunarrými. Engin breyting verður á rekstri Fossheima. Þegar nær dregur lokun Ljósheima verður hætt að taka við nýjum íbúum inn á hjúkrunardeildina þegar rými losna. Um mitt næsta ár, þegar rekstri deildarinnar verður hætt, býðst íbúum flutningur, á hjúkrunardeildina Fossheima, hjúkrunarheimilið Móberg og hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði eða annað hjúkrunarheimili í samráði við óskir íbúa. Enginn þarf að óttast flutning um langan veg eða að hjón verði aðskilin. HEILDARFJÖLGUN UM SEX Á SUÐURLANDI Ráðuneytið segir að þrátt fyrir lokun Ljósheima fækki hjúkrunarrýmum ekki á S