Metaðsókn í Háskólann á Akureyri

Umsóknir um meistaranám við Háskólann á Akureyri eru tvöfalt fleiri en í fyrra. Rektor skólans vonast til þess að geta tekið við sem flestum.Alls bárust 2.343 umsóknir um nám við Háskólann á Akureyri í haust. Það er 8,5 prósenta fjölgun frá fyrra ári. Áslaug Ásgeirsdóttir rektor skólans segir ýmislegt skýra aukinn áhuga á námi við skólann. Sveigjanleiki námsins sé til að mynda aðdráttarafl. „Nánast allt námið hjá okkur er fjarnám með lotum og ég held að það henti fólki bara mjög vel í nútímasamfélagi. Við erum líka bara með gott nám og nemendur okkar sem útskrifast eru að gera góða hluti í vinnu líka, þannig ég held að þetta sé blanda af mörgu,“ segir Áslaug.Umsóknum um meistaranám fjölgaði mest, sérstaklega í kennaradeild, lagadeild og viðskiptadeild. „Við erum rosalega ánægð að sjá það o
Metaðsókn í Háskólann á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd