Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja það ekki rétt sem kemur fram í frétt RÚV um að loka eigi hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og þannig 20 hjúkrunarrýmum. Þau segja fólk ekki þurfa að óttast að vera skilið frá maka eða flutt fjarri heimabyggð.