Landris heldur áfram við Svartsengi með sama hraða og verið hefur. Líkanareikningar gefa til kynna að 27,5 milljónir rúmmetra af kviku hafi safnast upp frá því síðasta eldgosi lauk í júlí í fyrra.Jarðskjálftavirkni er áfram lítil.Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt. Líkur á eldgosi aukast meðan kvikusöfnun heldur áfram. Mest er hættan við Sundhnúksgíga, þar sem fyrri eldgos hafa orðið. Þar telst hættan á eldgosi mikil en minnkar eftir því sem fjær dregur.Hraunbreiða eftir fyrri eldgos á Reykjanesskaga.Guðmundur Bergkvist