Hannes áfrýjar ekki dómi vegna kynferðisbrots á Múlaborg

Landsréttur staðfesti í gær að Hannes Valle Þorsteinsson sæti áfram gæsluvarðhaldi vegna kynferðisbrots gegn barni á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík. Landsréttur ákvað þó að stytta gæsluvarðahaldið. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði hann í gæsluvarðhald til 4. desember en Landsréttur stytti það til 26. júní.Hannes var undir lok síðasta mánaðar dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar. Auk þess var hann dæmdur til að greiða stúlkunni sem hann braut á 2,5 milljónir króna í miskabætur.Í úrskurði Landsréttar um gæsluvarðhaldið kemur fram að Hannes hyggist ekki áfrýja dóminum. Verjandi hans greindi frá þeirri ákvörðun í greinargerð til dómstólsins. Hannes hafði ekki tekið ákvörðun um áfrýjun þegar héraðsdómur framlengdi gæsluvarðhald yfir honum.Hannes hefur sætt gæsluvarðhaldi frá því í ágúst
Hannes áfrýjar ekki dómi vegna kynferðisbrots á Múlaborg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd