Vilhjálmur ekki lengur þingmaður

Vilhjálmur Árnason er formlega hættur á þingi en forseti Alþingis las upp tilkynningu frá honum þess efnis við upphaf þingfundar í dag. Vilhjálmur var kjörinn fyrst á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi árið 2013 og hefur gegnt þingmennsku æ síðan. Bryndís Haraldsdóttir þingforseti þakkaði Vilhjálmi fyrir hans störf.Vilhjálmur leiddi lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn mynda meirihluta þar í bæ og er Vilhjálmur sestur í stól bæjarstjóra.RÚV / Ragnar VisageVilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ og nú fyrrum þingmaður.
Vilhjálmur ekki lengur þingmaður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd