Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins OpenAI hófu í gær formlega ferli hlutafjárútboðs, sem gæti átt sér stað í haust. Þá gæti reynt á það hve mikið fjárfestar eru sólgnir í að fjárfesta í gervigreindarfyrirtækjum en forsvarsmenn fyrirtækisins Anthropic, sem rekur gervigreindina Claude, stefna einnig að hlutafjárútboði um þetta leyti. Það sama má segja um SpaceX, sem rekur meðal annars gervigreindina Grok.