Starfsmenn sundlaugarinnar á Akureyri þurfa að hafa afskipti af gestum daglega sem klæðast nærbuxum undir sundskýlu.Mbl.is greindi frá því á dögunum að það væri í tísku að fara í sund í nærbuxunum. Forstöðumaður Laugardalslaugar segir að þessi tíska hafi valdið vandræðum í hreinsikerfum sundlauga enda teljist nærbuxur ekki viðurkenndur sundfatnaður.Vandamálið teygir anga sína víða og Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar, hefur sömu sögu að segja.„Við höfum rætt þetta forstöðumenn, okkar á milli. Þetta er landlægt vandamál, þessi tískubylgja,“ segir Gísli Rúnar, sem ræddi nærbuxnanotkun í sundlaugum, eða brókarnotkun líkt og hann kýs að kalla tískubylgjuna, í Morgunútvarpinu á Rás 2.Dæmi eru um að gestir sundlaugarinnar á Akureyri fari í nærbuxum innanundir sundskýlu í su